Fara á efnissvæði

Umsóknir vegna námskeiða

Styrkur getur numið að hámarki 90% af kostnaði vegna námskeiðsgjalda, námsgjalda, eða ráðstefnugjalda. Hámarksstyrkur per reikning er kr. 390.000 kr. á starfskraft sem er félagi í VR/LÍV.

Fyrirtæki geta fengið allt að 4 milljónum í heildarstyrki á hverju almanaksári frá SVS.

Fyrirtækjastyrkir eru aðskildir einstaklingsstyrkjum og hefur úthlutun fyrirtækjastyrks engin áhrif á réttindi einstaklinga.

 

Umsóknir fyrirtækja fara í gegnum Áttin.is

Skilyrði fyrir styrk til fyrirtækja:

  • Fyrirtæki þarf að hafa greitt iðgjöld í sjóðinn samfellt sl. 12 mánuði til að eiga rétt á styrk.
  • Sækja þarf um styrk innan 12 mánaða frá útgáfu reiknings.
  • Fyrirtæki getur ekki sótt um styrk vegna náms/námskeiðs sem einstaklingur hefur fengið styrk fyrir. Athygli er vakin á sameiginlegum styrk einstaklings og fyrirtækis þegar nám kostar kr. 200.000 eða meira - sjá nánar hér.

 

Stjórn getur heimilað sérstaka undanþágu frá þessum ákvæðum ef verkefni felur í sér frumkvöðlastarf eða nýsköpun.