Fara á efnissvæði

Lækkað iðgjald

Fyrirtæki með starfsfólk innan VR/LÍV geta sótt um lækkun á greiddu iðgjaldi til sjóðsins úr 0,3% í 0,1%. Umsóknir eru afgreiddar tvisvar á ári, í febrúar og október.

Fylgigögn vegna umsóknar fyrirtækja um lækkað iðgjald

1

Sundurliðað kostnaður fræðslu

  • Sundurliðað yfirlit yfir kostnað fyrirtækis sl. tveggja ára vegna fræðslu starfsmanna í VR/LÍV sem tiltekur bæði til innri, aðkeyptrar og rafrænnar fræðslu sé hún til staðar. Styðjast skal við excel-skjal, sjá hlekk hér að neðan. 

2

Fræðsluáætlun

  • Fræðsluáætlun núverandi eða komandi árs, auk áætlana sl. tveggja ára.

3

Virk menntastefna

4

Skýr gögn

  • Mikilvægt er að aðsend gögn séu skilmerkileg

Skilyrði vegna umsókna um lækkun á iðjgaldi

Fyrirtækið standi í skilum við sjóðinn og hafi greitt iðgjöld s. 12 mánuði samfellt.

Félagsmenn í VR/LÍV eigi kost á að sækja þau námskeið sem eru í boði.

Í boði séu bæði fagnámskeið og námskeið almenns eðlis.

Ekki er greitt fyrir launakostnað starfsmanna vegna námskeiða.

  • Fyrirtæki á lækkuðu iðgjaldi geta ekki sótt um aðra styrki til sjóðsins. (Fyrirtæki á lækkuðu iðgjaldi geta sótt um sameiginlegan styrk en fá ekki styrkinn greiddan frá sjóðnum, heldur skrá hann sérstaklega hjá sér í sundurliðaðan kostnað).
  • Samþykki stjórn lækkun iðgjaldagreiðslna úr 0,30% í 0,10% tekur hún gildi frá og með næstu mánaðamótum eftir samþykki og gildir fyrst í eitt ár. Endurnýi fyrirtækið undanþágubeiðni sína gildir hún eftir það í tvö ár í senn en tilskilin gögn þurfa að fylgja í hvert sinn.
  • Umsókn um endurnýjun þarf að berast sjóðnum a.m.k. einum mánuði áður en undanþágan fellur úr gildi og iðgjaldið hækkar í 0,30%.