Fara á efnissvæði

Spurt og svarað

Hér má finna svör við helstu spurningum sem félagsfólk VR og LÍV hefur varðandi starfsmenntasjóðinn

Athygli er vakin á því að félagsfólk VR sækir um styrki í sjóðinn á mínum síðum á vr.is.

Félagsfólk annarra aðildarfélaga LÍV sækir um hjá sínu stéttarfélagi.

Spurt og svarað

Hvaða stéttarfélög tengjast SVS?

Sjóðsfélagar SVS tilheyra 10 stéttarfélögum sem mynda Landssamband íslenzkra verzlunarmanna (LÍV) - sjá aðildarfélögin hér.

Get ég flutt réttindin mín í starfsmenntasjóð milli stéttarfélaga?

Já ef þú tengist eftirfarandi starfsmenntasjóðum; SVS, SV, Starfsafl, Landsmennt, Sveitamennt, Ríkismennt og Sjómennt sem hafa gert samning sín á milli.

Athugið sérstaklega að greiðsla verður að hafa átt sér stað til nýja stéttarfélagsins áður en flutningur á félagasögu á sér stað.

Ferlið er fyrirfram skilgreint - sjá nánar hér

Sjá hér hvaða stéttarfélög falla undir samninginn.

Hvað er styrkhæft í SVS ? - 90% styrkur

Nám til eininga og frekari réttindi

t.d. háskóli, framhaldsskóli, ökuskóli, viðurkenndur bókari - sjá nánar hér.

Tungumálanám

Að hámarki kr. 180.000 á hverju almanaksári með eða án uppsöfnunar.

Ákveðin viðmið eiga við um annað tungumálanám, námskeið og einkakennslu  - sjá nánar hér.

Námskeið sem tengist núverandi starfi

Námskeið sem tengist núverandi starfi sem greitt er af til sjóðsins - verður að falla að viðmiðum sjóðsins um námskeið - sjá nánar hér.

Netnámskeið sem tengist núverandi starfi

Netnámskeið sem tengist núverandi starfi sem greitt er af til sjóðsins. Má vera áskrift að vefsíðu/efnisveitu - sjá nánar hér.

Sjálfstyrkingarnámskeið innanlands

Sjálfstyrkingarnámskeið innanlands (sem er ekki hluti af meðferðarúrræði) - sjá nánar hér.

Ráðstefnugjald

Ráðstefnugjald sem tengist núverandi starfi umsækjanda sem greitt er af til sjóðsins - sjá nánar hér.

Stjórnendaþjálfun/starfstengd markþjálfun

Stjórnendaþjálfun/starfstengd markþjálfun að hámarki 12 tímar á almanaksári - sjá nánar hér.

Hvað er styrkhæft í SVS? - 50% styrkur

Ferðastyrkur - ferða- og gistikostnaður sem tengist starfstengdu námi, ráðstefnu eða námskeiði

Ferðastyrkur vegna ferða- og gistikostnaðar sem tengist starfstengdu námi, ráðstefnu eða námskeiði - sjá nánar hér.

Sótt er um ferðastyrk með aðskildri umsókn frá starfstengdum styrk.

Veittur ferðastyrkur er 50% að hámarki 50 þúsund á ári sem dregst frá árlegum hámarksstyrk.

Tómstundastyrkur - tómstundanámskeið innanlands

Tómstundanámskeið innanlands sem falla að skilyrðum um námskeið eru styrkhæf í SVS.

Veittur tómstundastyrkur er 50% að hámarki 40 þúsund á ári sem dregst frá árlegum hámarksstyrk en hefur ekki áhrif á uppsöfnun.

Tómstundanámskeið innanlands mega vera byrjendanámskeið, en athuga skal sérstaklega að iðkun í sama fagi er ekki styrkhæf.

Litið er á öll líkamsræktartengd námskeið, svo sem yoga, dans, golf, skíði, tennis, hlaup o.fl. sem iðkun nema þau séu skilgreind byrjendanámskeið.

Athugið ekki er hægt að fá styrk oftar en einu sinni vegna byrjendanámskeiðs í sömu grein.

Sjá nánar hér.

.

Hvað er ekki styrkhæft í SVS?

  • Uppihald

  • Sölu/vörusýning

  • Starfsþjálfun

  • Meðferð

  • Handleiðsla

  • Sálrænn stuðningur

  • Ráðgjöf

  • Einkakennsla í öðru en tungumálanámi

  • Sjálfstyrkinganámskeið erlendis

  • Tómstundanámskeið erlendis

  • Árgjald (t.d. í hvers kyns félög)

  • Félags- og kórgjald

  • Bækur eða námsgögn

  • Námskeið sem hafa þann tilgang að undirbúa einstaklinga undir ákveðna viðburði/keppni

  • Öll gjöld sem teljast valfrjáls, t.d. nemendafélagsgjöld, skápagjald og foreldrafélagsgjald

  • Vöru- og efniskostnaður vegna annars náms en framhaldsskólanáms

.

Spurningar og svör varðandi rétt einstaklings

Hversu hár er 100% réttur í sjóðinn?

100% rétt fær félagi með laun sem eru jöfn eða hærri en byrjunarlaun afgreiðslufólks í verslunum, samkvæmt kjarasamningi VR/LÍV.

Félagi með 100% rétt í sjóðinn á rétt á hámarksstyrk kr. 180.000 á hverju almanaksári - sjá reglur sjóðsins

Hvernig eru réttindin reiknuð?

Réttindi til styrks reiknast sem hlutfall launa félaga af byrjunarlaunum afgreiðslufólks í 100% starfi á 12 mánaða tímabili. 

Þegar heildarlaun félaga eru lægri (t.d. vegna hlutastarfs) þá reiknast réttindin í starfsmenntasjóðinn hlutfallslega miðað við launin á 12 mánaða tímabili. 

Við útreikning á réttindum er miðað við að lokamánuður ofangreinds tímabils sé tveimur mánuðum áður en umsókn berst.

Réttur einstaklinga miðast við að greidd séu iðgjöld frá fyrirtæki sl. 12 mánuði og mótframlag frá stéttarfélagi.

Hver eru skilyrði þess að ég geti sótt um styrk í sjóðinn?

Greiða þarf í 3 mánuði í sjóðinn og þar af 1 af sl. 6 mánuðum til að hægt sé að sækja um styrk í sjóðinn.

Hvað er hlutfallslegur réttur?

Þeir sem ná ekki lágmarkslaunum á sl. 12 mánuðum eiga hlutfallslegan rétt í sjóðinn.

Hvenær endurnýjast réttur minn í sjóðinn?

Réttur endurnýjast um hver áramót. Þeir sem fullnýta rétt sinn árið 2026 fá aftur rétt um næstu áramót ef félagsgjöld halda áfram að berast.

Safnast réttindin mín upp milli ára?

Þeir sem nýta ekki rétt sinn árið 2026 halda áfram með 180.000 kr. rétt árið 2027 ef iðgjöld og félagsgjöld halda áfram að berast.

Ef það líða samtals 36 mánuðir þá myndast uppsafnaður réttur - sjá nánar hér 

Hvenær á ég rétt á uppsöfnuðum styrk?

Þeir sem nýta ekki sjóðinn í 36 mánuði samfellt eiga rétt á uppsöfnuðum styrk (að hámarki 540.000 kr.) fyrir einu samfelldu námi - aðeins hægt að sækja um styrkinn í einu lagi með einni umsókn.

ATH greiðslur til sjóðsins þurfa að hafa borist að lágmarki í 30 mánuði af síðustu 36 mánuðum fyrir dagsetningu umsóknar. 

Sjá nánar hér

Hvenær fellur réttur í sjóðinn niður?

Ef iðgjöld berast ekki til sjóðsins, í 6 mánuði samfellt, þá fellur réttur félaga niður.

Hvað gerist ef það vantar greiðslur fyrir einhverja mánuði hjá mér?

Ef félagi er með hlutfallslegan rétt þá geta greiðslulausir mánuðir haft áhrif á prósenturétt félaga. Réttur getur breyst milli mánaða í slíkum tilfellum.

Réttindin taka alltaf mið af greiðslu sl. 12 mánuði.

Þegar ég hætti að vinna, hvað hef ég þá langan tíma til að nýta réttinn?

Þeir sem hafa hafið töku ellilífeyris, eru á endurhæfingarlífeyri eða örorkulífeyri halda fullum rétti í 12 mánuði frá því að greiðslur atvinnurekanda hætta að berast vegna þeirra til sjóðsins og halda rétti í 36 mánuði vegna tómstundastyrks.

Réttindi miðast við síðustu greiðslur atvinnurekanda sem berast í sjóðinn.

Áframhaldandi greiðsla félagsgjalda af ellilífeyri, endurhæfingarlífeyri eða örorkulífeyri viðheldur ekki rétti í sjóðinn.

Sjá nánar í grein 1.2. í reglum sjóðsins

Hvað get ég sótt oft um?

Ekkert hámark er á fjölda umsókna um styrk í sjóðinn.

Þú getur sótt um þar til réttur þinn í sjóðinn klárast.

Athugið að ekki er hægt að sækja oftar en einu sinni vegna sama reiknings og útgáfudagur reiknings má ekki vera eldri en 12 mánaða við dagsetningu umsóknar. 

Spurningar og svör vegna fylgigagna umsókna

Hvað er löggildur reikningur?

Með umsókn verður að fylgja löggildur reikningur á nafni félaga þar sem fram kemur nám/námskeiðslýsing ásamt nafni og kennitölu fræðsluaðila. 

Löggildur reikningur kemur úr rafrænu bókhaldskerfi eða númeruðu reikningahefti. 

Sjá nánar hér 

Hvað er átt við með greiðslustaðfestingu?

Staðfesting á greiðslu vegna útgefins reiknings, t.d. skjámynd úr heimabanka eða greiðslukvittun.

Ef greitt er með raðgreiðslusamningi þarf: afrit af raðgreiðslusamning + staðfestingu á fyrstu greiðslu úr banka að fylgja með umsókn. Raðgreiðslusamningar þurfa vera við lánastofnanir en ekki við skólana sjálfa.

Ef reikningur er einungis að hluta til greiddur með korti/bankareikningi (afgangur greiddur með peningum), þá fæst eingöngu endurgreitt úr sjóðnum sá hluti sem greiddur er með korti/bankareikningi, en ekki sá sem er greiddur með pening.

Hvaða gögn þurfa að fylgja með umsókn um ferðastyrk?

  • reikningur á nafni félaga (vegna ferðar og gistingar)

  • staðfesting á greiðslu reiknings

  • upplýsingar um erindið

  • upplýsingar um fjölda km ef félagi ferðast á eigin bíl

Ferðin verður að tengjast námi, starfstengdu námskeiði/ráðstefnu eða starfstengdri fræðsluferð fyrirtækis - sjá nánar hér 

Skiptir máli hvort nám sé sótt erlendis?

Nei, það skiptir ekki máli svo lengi sem námið er styrkhæft í sjóðinn. 

Með námi/námskeiði og ráðstefnu sem sótt er erlendis þarf að fylgja lýsing með umsókn og tengill á vefsíðu fræðsluaðila/ráðstefnuhaldara.

Starfstenging þarf að liggja fyrir með umsókn þegar sótt er um starfstengd námskeið erlendis. Einingabært nám þarfnast ekki rökstuðnings með umsókn.

Skila þarf upplýsingum á íslensku eða ensku með umsókn vegna reikninga sem gefnir eru út á öðrum tungumálum en íslensku eða ensku svo umsókn fái afgreiðslu í sjóðinn.