Sjóðurinn er hýstur hjá VR og sér VR um að tryggja rekstur sjóðsins og afgreiðslu styrkja.
Hlutverk
Hlutverk Starfsmenntasjóðs verslunar- og skrifstofufólks samanstendur af fimm atriðum, en þau eru:
- Að auka starfshæfni og menntunarstig félagsfólks sjóðsins sem leitt getur til virðisauka fyrir starfsfólkið og fyrirtækin.
- Að bæta samkeppnishæfni fyrirtækja sem greiða í sjóðinn með aukinni menntun og hæfni starfsfólks.
- Að stuðla að aukinni virðingu fyrir störfum í verslunar-, þjónustu- og skrifstofugreinum með því m.a. að styðja við áframhaldandi þróun náms og hæfniaukningar tengt greinunum.
- Að hvetja félagsfólk til náms og/eða frekari hæfniaukningar.
- Að hvetja fyrirtæki til að hækka menntunarstig í fyrirtækjum og stuðla að aukinni hæfni starfsfólks innan fyrirtækja.
Framtíðarsýn
Í framtíðarsýn sjóðsins birtist yfirlýsing um það hvernig stjórn sjóðsins sér starfsemi sjóðsins í framtíðinni. Sett hafa verið markmið um þann árangur sem sjóðurinn á að ná og fyrir hvað hann á að standa. Helstu atriði í framtíðasýninni eru:
- Hlutfall styrkja af greiddum iðgjöldum vaxi samhliða aukinni kynningu á sjóðnum.
- Áhersla er á að nám sem sjóðurinn styrkir auki starfshæfni starfsfólks og stuðli að aukinni samkeppnishæfni fyrirtækja.
- Aðhalds sé gætt í rekstrarkostnaði og ekkert tap verði af rekstri sjóðsins.
- Sjóðurinn beitir sér fyrir þróun náms sem nýtist sjóðsfélögum og fyrirtækjum. Sú þróun verði kostuð með fjárfestingatekjum sjóðsins.
- Gagnsemi styrktra verkefna verði mæld og markvissar aðgerðir framkvæmdar til þess að auka ásókn í styrki og hækka menntunarstig sjóðsfélaga.
- SVS beitir sér fyrir því að auka virðingu fyrir störfum sjóðsfélaga og aukinni fagmennsku í þeim greinum sem þeir starfa við.
- Rík áhersla verði lögð á skýrar úthlutunarreglur, gagnsæi í starfsemi sjóðsins og góða stjórnunarhætti.
- Starfsfólk sjóðsins veiti sjóðsfélögum og fyrirtækjum fyrirmyndarþjónustu og taki þátt í þróun náms í samráði við hagsmunaaðila.