Fara á efnissvæði

Styrkir vegna tómstundanámskeiða

Veittur er styrkur allt að 50% af námskeiðsgjaldi en að hámarki 40.000 kr. á ári . Upphæðin dregst frá hámarksstyrk ár hvert en hefur ekki áhrif á uppsöfnun.

-

Tómstundanámskeið verða að falla að viðmiðum sjóðsins um námskeið - sjá hér neðar. Þau mega vera byrjendanámskeið, en athuga skal sérstaklega að iðkun í sama fagi er ekki styrkhæf. Einkatímar í tómstund og meðferðarúrræði falla ekki undir viðmið sjóðsins um námskeið. 

Litið er á öll líkamsræktartengd námskeið, svo sem yoga, dans, golf, skíði, tennis, hlaup o.fl. sem iðkun nema þau séu skilgreind byrjendanámskeið. Athugið ekki er hægt að fá styrk oftar en einu sinni vegna byrjendanámskeiðs í sömu grein.

-

Aðeins er hægt að sækja um styrk vegna námskeiða sem haldin eru innanlands. 

Með umsókn þarf að fylgja

1

Reikningur á nafni félaga

Reikningur sem er á nafni félaga þar sem fram kemur nám/námskeiðslýsing og nafn fræðsluaðila

2

Staðfesting á greiðslu

Staðfesting á greiðslu, t.d. skjámynd úr heimabanka eða greiðslukvittun

Skilyrði fyrir styrkveitingu

  • Námskeið fellur að viðmiðum sjóðsins um námskeið

  • Reikningur má ekki vera eldri en 12 mánaða

  • Ekki er hægt að sækja um styrk oftar en einu sinni vegna sama reiknings

Félagsfólk sækir um styrk í gegnum sitt stéttarfélag. Félagsfólk VR sækir um styrk á Mínum síðum á vef VR.