Veittur er styrkur fyrir 90% af námi/starfstengdu námskeiðsgjaldi/ráðstefnugjaldi að hámarki 180 þúsund á ári. Upphæðin dregst frá hámarksstyrk.
Undir starfstengda styrki falla starfstengd námskeið, starfstengd netnámskeið, almennt nám til eininga, raunfærnimat, tungumálanámskeið, sjálfstyrkinganámskeið innanlands og ráðstefnur sem tengjast starfi umsækjanda. Sjá nánar hér.
Fylgigögn umsókna
1
Reikningur á nafni félaga
Reikningur skal koma úr rafrænu bókhaldskerfi eða númeruðu reikningahefti. Á reikningi skal koma fram nám/námskeiðslýsing og nafn og kennitala fræðsluaðila.
-
Erlendir reikningar mega vera án kennitölu en þurfa að vera á nafni umsækjanda.
-
Greiddur reikningur má ekki vera eldri en 12 mánaða, og jafnframt ekki gefinn út fyrir fyrsta greidda mánuð til VR eða LÍV-félags.
2
Staðfesting á greiðslu
Staðfesting á greiðslu, t.d. skjámynd úr heimabanka eða greiðslukvittun.
-
Ef greitt er með raðgreiðslusamningi þarf: afrit af raðgreiðslusamning + staðfestingu á fyrstu greiðslu úr banka að fylgja með umsókn. Raðgreiðslusamningar þurfa vera við lánastofnanir en ekki við skólana sjálfa.
-
Ef reikningur er einungis að hluta til greiddur með korti/bankareikning (rest með peningum), þá fæst eingöngu endurgreitt úr sjóðnum sá hluti sem er greiddur með korti/bankareikning, en ekki sá sem er greiddur með pening.
3
Upplýsingar
Þegar óljóst er hvernig námið/námskeiðið/ráðstefnan nýtist í núverandi starfi þá þurfa rök að fylgja með.
-
Við afgreiðslu umsókna í sjóðinn eru eingöngu upplýsingar um hvaðan greiðsla til sjóðsins berst, þ.e. frá hvaða fyrirtæki og mögulegt starfsheiti ef viðkomandi hefur bætt því sjálfur við sinn prófíl á Mínum síðum.
-
Vegna námskeiða sem tengjast starfi einstaklings; Starfsvið einstaklings sem sendir inn umsókn er ekki alltaf sýnilegt við afgreiðslu og þar af leiðandi verður viðkomandi að senda með rökstuðning varðandi starfstenginguna þó að umsækjandanum sjálfum finnist starfstengingin vera augljós.
-
Tengill á vefsíðu vegna ráðstefnu þarf einnig að fylgja umsókn.
4
Ef nám/námskeið/ eða ráðstefna er sótt erlendis
Með námi/námskeiði og ráðstefnu sem sótt er erlendis þarf að fylgja lýsing með umsókn og tengill á vefsíðu fræðsluaðila/ráðstefnuahaldara. Starfstenging þarf að liggja fyrir með umsókn. Einingabært nám þarfnast ekki rökstuðnings með umsókn.
-
Skila þarf upplýsingum á íslensku eða ensku með umsókn vegna reikninga sem gefnir eru út á öðrum tungumálum en íslensku eða ensku svo umsókn fái afgreiðslu í sjóðinn.
Uppsöfnuð réttindi - uppsafnaður styrkur
Ef ekkert hefur verið sótt um í starfsmenntasjóðinn í þrjú ár í röð myndast uppsöfnuð réttindi. Þá er hægt að sækja um styrk fyrir 90% af námskeiðsgjaldi að hámarki 540.000 kr. fyrir einu samfelldu námi. Aðeins er hægt að sækja um styrkinn í einu lagi og reikningar mega ekki vera eldri en 12 mánaða við skráningu umsóknar.
Greiðslur til sjóðsins þurfa að hafa borist að lágmarki í 30 mánuði af síðustu 36 mánuðum fyrir dagsetningu umsóknar.
Þegar réttur félaga í starfsmenntasjóðinn er hlutfallslegur þá reiknast greiddur styrkur einnig sem hlutfallslegur, hvort sem um er að ræða uppsafnaðan rétt eða ekki (sbr. c-lið í reglu 2.1.)
Athygli er vakin á því að hámarksstyrkur vegna tungumálanáms einstaklings er kr. 180.000 á almanaksári og gildir einnig þegar viðkomandi á rétt á uppsöfnun. Ef félagi á rétt á uppsöfnun þá er honum heimilt að nota það sem eftir stendur í ferðastyrk að hámarki kr. 150.000 en þó ekki hærra en 50% af ferða- og gistikostnaði.