Eftirfarandi viðmið eiga einnig við um annað tungumálanám, námskeið og einkakennslu
Námskeið verður að falla að viðmiðum sjóðsins um námskeið:
• Afmarkaður hluti náms sem fylgir fyrirfram ákveðinni áætlun eða skilgreiningu og lýkur yfirleitt með vottun á frammistöðu eða annars konar staðfestingu.
• Námskeið verður að hafa skilgreint upphaf, endi og leiðbeinanda.
• Upplýsingar um námskeið þurfa að vera aðgengilegar.
Ráðgjöf, persónuleg áætlun eða handleiðsla uppfylla ekki skilyrði námskeiðs af hálfu sjóðsins.
Aðgangur að öppum í íslensku eru styrkhæf falli þau að ofangreindum viðmiðum.
Leiðbeinandi íslenskunámskeiða, íslenskunáms eða einkakennslu sem starfar annarsstaðar en hjá viðurkenndum fræðsluaðila samþykktum af Mennta- og barnamálaráðuneytinu eða Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu verður að búa yfir neðangreindum hæfnikröfum og reynslu svo þjónusta viðkomandi teljist styrkhæf af starfsmenntasjóðum.
Aðrar hæfnikröfur:
• Marktæk þekking á kennslu tungumála
• Reynsla af kennslu frá viðurkenndum fræðsluaðila
• Hafa stundað nám á háskólastigi
• Fagleg vinnubrögð og metnaður til að skila góðri vinnu
Við mat á fræðsluaðila verða eftirfarandi gögn að liggja fyrir og berast sjóðnum á starfsmennt@starfsmennt.is
• Ferilskrá
• Listi yfir kennara, í tilvikum þar sem þeir eru fleiri en einn
• Lýsing á námskeiðum
• Vísun á upplýsingar á fræðsluaðila á vefmiðlum
.
Styrkhæfni á þjónustu fræðsluaðila í sjóðinn felur ekki í sér gæðamat, vottun eða ábyrgð af hálfu sjóðsins á innihaldi, framkvæmd eða árangri náms hjá fræðsluaðilanum. Sjóðurinn sinnir ekki reglubundnu eftirliti með starfsemi fræðsluaðila en komi fram ábendingar eða upplýsingar sem gefa tilefni til að ætla að fræðsluaðili uppfylli ekki viðmið sjóðsins um hæfnikröfur áskilur sjóðurinn sér rétt til að kalla eftir frekari gögnum og upplýsingum um hlutaðeigandi fræðsluaðila. Meti sjóðurinn það sem svo að fræðsluaðili uppfylli ekki hæfnikröfur sjóðsins kann það að leiða til þess að viðkomandi verði tekinn af lista yfir styrkhæfa fræðsluaðila.
Hámarksstyrkur sjóðsins vegna tungumálanáms einstaklings er kr. 180.000 á almanaksári
.