Hvernig myndast uppsöfnuð réttindi?
Ef ekkert hefur verið sótt um í starfsmenntasjóðinn í þrjú ár í röð myndast uppsöfnuð réttindi. Þá er hægt að sækja um styrk fyrir 90% af námskeiðsgjaldi að hámarki 540.000 kr. fyrir einu samfelldu námi. Aðeins er hægt að sækja um styrkinn í einu lagi og reikningar mega ekki vera eldri en 12 mánaða við skráningu umsóknar.
Greiðslur til sjóðsins þurfa að hafa borist að lágmarki í 30 mánuði af síðustu 36 mánuðum fyrir dagsetningu umsóknar.
Þegar réttur félaga í starfsmenntasjóðinn er hlutfallslegur þá reiknast greiddur styrkur einnig sem hlutfallslegur, hvort sem um er að ræða uppsafnaðan rétt eða ekki (sbr. c-lið í reglu 2.1.)
Athygli er vakin á því að hámarksstyrkur vegna tungumálanáms einstaklings er kr. 180.000 á almanaksári og gildir einnig þegar viðkomandi á rétt á uppsöfnun. Ef félagi á rétt á uppsöfnun þá er honum heimilt að nota það sem eftir stendur í ferðastyrk að hámarki kr. 150.000 en þó ekki hærra en 50% af ferða- og gistikostnaði.