Samningur um flutning á félagasögu milli stéttarfélaga og starfsmenntasjóða
SVS, SV, Starfsafl, Landsmennt, Sveitamennt, Ríkismennt og Sjómennt fylgja samningi um flutning á félagasögu félagsfólks milli fræðslusjóðanna sem hefur verið endurskoðaður og gildir frá 1. desember 2017. Samningnum er ætlað að tryggja sanngjarnan flutning réttinda milli starfsmenntasjóða.
VR
Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri (FVSA)
Afl Starfsgreinafélag
Verkalýðsfélag Þórshafnar
Verslunarmannafélag Skagfirðinga
Framsýn – stéttarfélag
Stéttarfélagið Samstaða
Stéttarfélag Vesturlands
Verkalýðsfélag Snæfellinga
Verkalýðsfélag Vestfirðinga
Efling
Verkalýðsfélagið Hlíf
Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis (VSFK)
Drífandi stéttarfélag
Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis
Verkalýðsfélag Grindavíkur
Báran stéttarfélag
Verkalýðsfélaga Suðurlands
Aldan – Stéttarfélag
Eining – Iðja
Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur
Verkalýðsfélag Akraness
Sjómannafélag Hafnarfjarðar
Sjómannafélag Eyjafjarðar
Sjómannafélag Ólafsfjarðar
Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur
Sjómannafélagið Jötunn
Eftirfarandi stéttarfélög geta flutt félagasögu milli starfsmenntasjóða samkvæmt samningi
Athygli er vakin á því að deildir iðngreina innan stéttarfélaga sem eru upptalin hér til hliðar falla ekki undir samning þennan, eingöngu almenn deild og verslunar- og skrifstofudeild.
Iðngreinar tengjast öðrum starfsmenntasjóðum t.d. Iðunni og Rafmennt og geta þar af leiðandi ekki flutt félagasögu sína til upptalinna félaga og sjóða.
Þeir félagar sem starfa eftir eftrfarandi kjarasamningum falla undir samstarfssamning þennan um flutning á félagasögu milli sjóða.
* Kjarasamningi VR/LÍV, SA og FA
Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks, SVS og
Starfsmenntasjóður verslunarinnar, SV
* Kjarasamningi Eflingar, Hlíf, VSFK & SA
Starfsafl
* Kjarasamningi SGS og SA
Landsmennt
* Kjarasamningi SGS og Sambands íslenskra sveitarfélaga
Sveitamennt
* Kjarasamningi SSÍ, SFS og SA
Sjómennt
* Kjarasamningi SGS og fjármála- og efnahagsráðuneytisins
Ríkismennt
Athugið sérstaklega að greiðsla verður að hafa átt sér stað til nýja stéttarfélagsins áður en flutningur á félagasögu á sér stað.
Ferlið er fyrirfram skilgreint og tryggja skal að öll gögn fylgi með þegar óskað er eftir flutningi á félagasögu - sjá nánar hér