Fegrunarfræði fellur undir starfstengt þegar stofur hafa starfsleyfi og sérstaklega tilgreint leyfi til kennslu sem lýkur á viðurkenningu/leyfi á ákveðni tækni.
Skilgreiningar á fegrunarfræðum:
Hér er notast við orðið fegrunarfræði þar sem orðið snyrtifræði nær yfir löggilda iðngrein. Þessi regla sem er hér rætt um nær því yfir allt annað nám sem telst til fegrunarfræða en hefur ekki hlotið löggildingu hér á landi, samanber eftirfarandi upptalningu:
1. Förðun
2. Naglalist, þ.m.t. ásetning gervinagla
3. Augnaháraásetningar, augnaháralengingar
4. Varanleg förðun á augabrúnir
Skólar sem kenna fegrunarfræði þurfa að uppfylla eftirfarandi skilyrði svo það nám sem þeir bjóða upp á sé styrkhæft sem starfstengt nám:
• Hafa starfs- og kennsluleyfi og texta sem tilgreinir að leyfin séu til staðar á vefsíðu og geta framvísað skírteini sé þess óskað.
• Hafa alla reikninga sundurliðaða þar sem skýrt kemur fram kostnaður vegna náms og varnings.
• Uppfylla skilyrði sjóðsins um námskeið, sjá hér.
• Veita nemanda diplómu/viðurkenningarskjal í lok náms.