Fara á efnissvæði

Flutningur milli starfsmenntasjóða

Félagsfólki, sem skiptir um stéttarfélag, gefst kostur á að sækja um flutning á félagasögu frá sínum gamla fræðslusjóði/starfsmenntasjóði til þess nýja. Athugið sérstaklega að greiðsla verður að hafa átt sér stað til nýja félagsins áður en flutningur á félagasögu á sér stað.

 

SVS, SV, Starfsafl, Landsmennt, Sveitamennt, Ríkismennt og Sjómennt fylgja samningi um flutning á félagasögu félagsfólks milli fræðslusjóðanna sem hefur verið endurskoðaður og gildir frá 1. desember 2017. Samningnum er ætlað að tryggja sanngjarnan flutning réttinda milli starfsmenntasjóða.

 

Ferli fyrir einstakling

1

Fylla út umsóknareyðublað

Hér má nálgast umsóknareyðublað. Athugið sérstaklega að greiðsla verður að hafa borist nýja stéttarfélaginu áður en flutningur á félagasögu á sér stað.

2

Hafa samband við gamla stéttarfélagið

Félagi hefur samband við gamla stéttarfélagið sitt og afhendir útfyllt umsóknareyðublað og óskar eftir flutningi. 

-

Ferli fyrir stéttarfélag

1

Samskipti gamla og nýja

Starfskraftur gamla stéttarfélagsins hefur samband við það nýja og sendir útfyllt umsóknareyðublað frá félaga ásamt félagasögu (sl. 36 mánuði í excel) og mögulegum veittum styrkjum viðkomandi í tölvupósti til nýs stéttarfélags og hefur félaga í cc í þeim pósti.

2

Móttaka og flutningur staðfestur

Starfskraftur nýs stéttarfélags staðfestir móttöku gagna með tölvupósti til beggja aðila (gamla stéttarfélagsins og einstaklings) og sendir tölvupóst á einstakling þegar flutningi er lokið.

Gott að vita

  • Yfirlit um greidd félagsgjöld eru send til hins nýja sjóðs/stéttarfélags sem reiknar réttindi félaga samkvæmt þeim reglum sem það félag vinnur eftir.
  • Ef styrkir hafa verið nýttir frá fyrri sjóði á almanaksárinu dragast þeir frá rétti í þeim nýja. Hafi enginn styrkur verið greiddur sl. 36 mánuði í félagasögu viðkomandi þá á hann þess kost að sækja um uppsafnaðan styrk í sínum nýja sjóði.
  • Óska þarf eftir flutningi innan 12 mánaða eftir að greiðslur byrja að berast í nýtt félag.
  • Ekki er hægt að sækja um styrk hjá nýjum sjóði ef reikningur er eldri en 12 mánaða eða gefinn út áður en umsækjandi byrjar að greiða til félagsins.

 

Starfsmenntasjóðirnir hvetja félagsfólk sitt til að fylgjast vel með réttindum sínum og óska eftir flutningi þegar skipt er um stéttarfélag á almenna vinnumarkaðinum.