Beint á leiðarkerfi vefsins

Starfsreglur Starfsmenntasjóðs verslunar- og skrifstofufólks

1.   Stjórn sjóðsins er heimilt að móta starfsreglur skv. 5.8. gr. samþykktar sjóðsins eftir því sem reynsla og starfsemi sjóðsins gefur tilefni til. 

2.   Markmið sjóðsins kemur fram í 2. gr. samþykktar sjóðsins og er eftirfarandi: „Markmið sjóðsins er að auka hæfni og menntun verslunar- og skrifstofufólks, ásamt því að stuðla að auknu framboði af námi og námsefni sem svari þörfum atvinnulífsins á hverjum tíma." 

3.   Sjóðurinn veitir styrki til menntunar félaga VR/LÍV, námskeiðahalds, námsefnisgerðar og styrki til fyrirtækja til starfs- og endurmenntunar starfsmanna. 

4.   Stjórn sjóðsins felur VR daglega umsjón og afgreiðslu sjóðsins skv. 5.7. gr. samþykktar hans. Um það skal gerður skriflegur samningur. 

5.   Semja skal skriflega um innheimtu á iðgjöldum fyrir sjóðinn við lífeyrissjóði og stéttarfélög. 

Úthlutunarreglur sjóðsins fyrir starfsmenn

6.   Allir félagsmenn VR/LÍV sem greitt hefur verið af til sjóðsins á síðustu 12 mánuðum, geta sótt um starfsmenntastyrk til hans.  Senda ber allar umsóknir um nám erlendis til starfsmanns sjóðsins.

7.   Félagsmenn VR/LÍV sem eru í fæðingarorlofi eða eru á atvinnuleysis- eða örorkubótum geta sótt um styrk til sjóðsins.

8.   Ellilífeyrisþegar, sem voru félagsmenn VR/LÍV þegar þeir fóru á eftirlaun, geta sótt um tómstundastyrki sbr. 11. gr. þó ekki lengur en í 36 mánuði eftir að greitt er af þeim síðast til sjóðsins.

9.   Upphæð styrksins fer eftir stigaeign. Sjóðurinn er tekjutengdur og starfsmaður getur unnið sér inn viðbótarstig eða brot úr stigi í hlutfalli við upphæð iðgjalds. Starfsmaður sem er með laun á bilinu kr. 75.000-180.000 vinnur sér inn eitt stig fyrir hvern mánuð sem greitt hefur verið iðgjald í sjóðinn og er það að jafnvirði kr. 1.000 styrks. Dæmi: ef greitt hefur verið iðgjald í sjóðinn síðustu 3 ár, á starfsmaðurinn inni 36 stig sem er að jafnvirði styrks að upphæð kr. 36.000. Starfsmenn sem eru með lægri laun en kr. 75.000 fá stig í hlutfalli við laun.  Dæmi:  félagsmaður sem er með kr. 60.000 laun (60.000 : 75.000 = 0,8). Það samsvarar 800 kr. styrk á mánuði.   Þeir sem eru með hærri tekjur en kr. 180.000 á mánuði fá hlutfallslega fleiri stig. Dæmi: ef starfsmaður hefur kr. 225.000 í tekjur á mánuði fær viðkomandi 1,25 stig á mánuði (225.000 : 180.000 = 1,25). Það samsvarar 1.250 króna styrk á mánuði eða kr. 15.000 á ári.

10. Starfsmenntastyrkur. Veittur er starfsmenntastyrkur eftir stigaeign, en þó aldrei meira en sem nemur helmingi af námskeiðsgjaldi. Undantekning frá meginreglu sjóðsins að veittur er 75% styrkur vegna náms, sem kennt er skv. námskrám Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, sem metið er til styttingar á námi í framhaldsskóla.  Þeir félagsmenn sem hafa annað tungumál en íslensku að móðurmáli, geta fengið styrk allt að 75% af kostnaði sem þeir bera við íslenskunám fyrir útlendinga. Styrki má nýta í fleiri en eitt námskeið. Stig dragast frá áunnum stigum sjá 9. gr.

Bráðabirgðaákvæði: Veittur er 75% styrkur til félagsmanna sem eru á atvinnuleysisbótum og greiða félagsgjöld.  Ákvæðið fellur niður 1. apríl 2010.

11. Tómstundastyrkur. Veittur er styrkur til að sækja tómstundanámskeið að fjárhæð kr. 30.000 á ári en þó aldrei meira en sem nemur helmingi af námskeiðsgjaldi. Fullan styrk má nýta í fleiri en eitt námskeið. Stig dragast frá áunnum stigum sbr. 9. gr.

12. Ferðastyrkur: Sæki félagsmaður um styrk vegna starfsnáms, sem aðeins er boðið upp á utan heimabæjar viðkomandi, getur hann sótt um ferðastyrk fyrir allt að helmingi fargjalds ef vegalengdin milli heimilis og fræðslustofnunar er að lágmarki 50 km.  Skila þarf inn sundurliðuðum reikningi. Stig dragast frá í samræmi við þá fjárhæð sem greidd er. Skilyrði fyrir veitingu ferðastyrks er að starfsmaður greiði sjálfur námskeiðsgjöld og ferðakostnað.

Ferðist viðkomandi á eigin bíl getur hann sótt um ferðastyrk, sem nemur kílómetragjaldi skv. reglum Tryggingastofnunar ríkisins (kr. 26,20 á km. frá 1. október 2009).

Þeir félagsmenn, sem sækja starfsnám erlendis, sem ekki er boðið upp á hérlendis, geta sótt sérstaklega um ferðastyrk sem nemur að hámarki helmingi af fargjaldi. Námið þarf að standa yfir í minnst tvo daga.

Hámarksferðastyrkur á ári er kr. 30.000 hvort sem um er að ræða fargjald eða kílómetragjald. Ekki eru veittir ferðastyrkir vegna gistingar eða uppihalds, sölu/ vörusýninga, heimsókna í einstök fyrirtæki, ráðstefna almenns eðlis og starfsþjálfunar.

13. Styrkir til kaupa á hjálpartækjum fyrir lestrar- og ritstuðning: Félagsmenn sem eru lesblindir eða eiga við lestrar- og ritörðugleika að stríða geta sótt um styrk sem nemur allt að 75% af kostnaði vegna kaupa á hjálpartækjum ætluðum til stuðnings við lestur og skrift.  Heildarstyrkur miðast við almennar reglur sjóðsins (þ.e. stigainneign félagsmanns) en hámark styrksins er kr. 50.000.

14. Fylla þarf út umsóknareyðublað þegar sótt er um styrki og senda það ásamt greiðslukvittun til viðkomandi stéttarfélags.  Umsóknareyðublaðið er hægt að nálgast hjá aðildarfélögum sjóðsins eða á heimasíðu sjóðsins http://www.starfsmennt.is/
Greiðslukvittun má aldrei vera eldri en 12 mánaða. 

 Samskipti starfsmenntasjóðanna 

15. Sá sem öðlast hefur rétt til greiðslu úr starfsmenntasjóði eins verkalýðsfélags, öðlast rétt hjá Starfsmenntasjóði verslunar- og skrifstofufólks skv. gagnkvæmum samningum eftir að greitt hefur verið vegna hans til sjóðsins í einn mánuð, enda hafi hann fram að því átt rétt hjá fyrra félaginu.  Stigaeign viðkomandi er skoðuð sérstaklega eftir því hve lengi viðkomandi hefur greitt í annað félag og hve miklir styrkir hafa verið sóttir þaðan.  Farið er eftir ákveðnum reiknireglum sem eru byggðar á samkomulagi við aðra starfsmenntasjóði, enda falli flutt réttindi í fyrri sjóðnum þar með niður.  Þegar félagsmaður hefur fengið samþykktan réttindaflutning frá öðrum  fræðslusjóði skal umsóknin að öllu öðru leyti vera afgreidd eftir úthlutunarreglum sjóðsins.

16. Heimilt er að fresta greiðslu styrks þar til staðfesting annarra sjóða liggur fyrir um að umsækjandi hafi ekki sótt um greiðslur þaðan. Starfsmenntasjóðurinn skal leita slíkrar staðfestingar.

17. Sá sem reynir að afla sér styrkja með því að gefa rangar eða villandi upplýsingar eða leynir upplýsingum  missir rétt til styrks. Heimilt er að endurkrefja félagsmenn um allan styrkinn auk dráttarvaxta.

 Styrkir til fyrirtækja/stéttarfélaga 

18. Fyrirtæki, sem greitt hafa iðgjöld í sjóðinn í a.m.k. sex mánuði geta sótt um styrk til sjóðsins.

19. Umsækjendur skulu fylla út þar til gert umsóknareyðublað sem hægt er að nálgast á http://www.starfsmennt.is/ eða skrifstofu sjóðsins þar sem kemur m.a. fram lýsing á því fræðsluverkefni sem sótt er um styrk fyrir, skipulag þess, efnisinntak, áætluð framkvæmd, kostnaðaráætlun, aðrir styrkir og framlag umsækjanda.

20. Þau verkefni sem stuðla að nýsköpun í menntun félagsmanna VR/LÍV ásamt þróunarverkefnum munu njóta forgangs við styrkveitingu.

21. Styrkur til fyrirtækis tekur mið af greiðslum til sjóðsins og fjölda starfsmanna sem styrkurinn tekur til og eru félagsmenn VR/LÍV.  Styrkurinn skal þó ekki vera hærri en sem nemur 50% af kostnaði og að hámarki kr. 30.000. á hvern starfsmann sem er félagsmaður í VR/LÍV.  Jafnframt skal hámarksupphæð til fyrirtækis vera kr. 2.500.000. á ári.  Stjórn er heimilt að veita sérstaka undanþágu frá þessum ákvæðum ef verkefnið felur í sér frumkvöðlastarf eða nýsköpun.

22. Stjórn er heimilt að binda styrk kvöðum.

23. Styrkumsækjandi getur fengið samþykki fyrir styrk áður en námskeið er haldið, en greiðsla hans fer ekki fram fyrr en að námskeiði loknu.  Styrksins skal vitja innan 12 mánaða frá úthlutun, annars fellur hann niður.

 Undanþága frá fullu iðgjaldi

24. Fyrirtæki geta sótt um lækkun á iðgjaldi til sjóðsins að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:

a.  Fram komi að virk endurmenntunarstefna sé í fyrirtækinu og að starfsmenn, sem eru félagsmenn í VR/LÍV, eigi kost á að sækja þau námskeið sem eru í boði.  Bjóða þarf bæði upp á fagnámskeið og almenn námskeið.

b.  Hlutfallslegur kostnaður af menntastefnu fyrirtækisins vegna þessara félagsmanna sé meiri en nemur 0,20% af heildarlaunum þeirra (reitur 02 á launaframtali).

  Umsókn skal fylgja:

1.  Námskrá fyrirtækisins eða önnur sambærileg gögn er staðfesti að virk menntastefna  sé til staðar sbr. a. lið.

2.  Sundurliðuð kostnaðaráætlun vegna endurmenntunar starfsmanna sem greitt er af til sjóðsins (sjá umsóknareyðublað). Launakostnaður starfsmanna (nemenda) á námskeiðstíma skal ekki talinn með.

3.  Við endurnýjun umsóknar þurfa, auk ofangreindra gagna, að fylgja upplýsingar um þátttöku félagsmanna VR/LÍV og samanlagðan kostnað fyrirtækisins af menntun þeirra frá síðustu umsókn.

Umsóknum skal skila á eyðublöðum sjóðsins

25. Afgreiðsla undanþága fer fram mánaðarlega eða samkvæmt ákvörðun sjóðsstjórnar.

26. Samþykki stjórn lækkun iðgjaldagreiðslna úr 0,20% í 0,10% tekur hún gildi frá og með næstu mánaðamótum eftir samþykki stjórnar.  Gildir undanþágan fyrst í eitt ár og rennur þá út og gjaldið hækkar í 0,20%. Endurnýi fyrirtækið undanþágubeiðni sína gildir hún eftir það í tvö ár í senn en tilskilin gögn þurfa að fylgja í hvert sinn.  Umsókn um endurnýjun þarf að berast sjóðnum a.m.k. tveimur mánuðum áður en undanþágan fellur úr gildi og gjaldið hækkar í 0,20%.

Uppgjör á sjóðnum

27. Framkvæmd greiðslu stéttarfélaganna skal háttað skv. samþykkt LÍV dags 8. apríl 2003.

28. Stjórn áskilur sér rétt til breytinga á reglum þessum án fyrirvara. Þær miðast við stöðu sjóðsins hverju sinni.

Reglur þessar voru samþykktar á fundi stjórnar Starfsmenntasjóðsins 9. október 2000 og voru endurskoðaðar 15. október 2004, 8. mars, 8. nóvember 2005, 6. mars,  3. júlí, 3. október, 6. nóvember 2007 og 5. desember 2008.


Viltu skýrari texta?

Kynntu þér hérna hvernig þú getur stækkað letrið, breytt litum í bakgrunni og fleira.

Vefurinn er sérhannaður fyrir lesblinda og sjóndaufa.


Kynntu þér þá námsmöguleika sem eru í boði. Sjá lista yfir skóla.


Flutningur stiga

Við viljum vekja athygli á því að hægt er að flytja stig á milli sjóða frá Sjómennt, Starfsafli og Landsmennt.  Sjá nánar í starfsreglum.


Slóð :

Starfsreglur

Stjórnborð

Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta

Myndir

Kona með möppuMaður við skrifborð að hugsaMaður sem heldur á kassa af ávaxtasafaKona bak við stafla af bókum