Fara á efnissvæði

Nýsköpunar- og þróunarstyrkir

Viðmið stjórnar við úthlutun nýsköpunar- og þróunarstyrkja

Verkefni skulu taka mið af markmiðum sjóðsins sem eru að auka hæfni og menntun verslunar- og skrifstofufólks ásamt því að stuðla að auknu framboði af námi og námsefni sem svarar þörfum atvinnulífsins á hverjum tíma. Að sama skapi stuðlar sjóðurinn að auknu svigrúmi til rannsókna sem geta leitt af sér aukin gæði og/eða fjölbreyttari valkosti fyrir verslunar- og skrifstofufólk.

Hver eru viðmið sjóðsins?

Hverjir geta sótt um?

Fyrirtæki, fræðsluaðilar með viðurkenningu frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu og sérfræðingar úr háskólasamfélaginu.

Hvers konar verkefni koma til greina?

Nýsköpunar- og þróunarverkefni sem hafa yfirfærslugildi, verkefni sem nýtast öðrum innan starfsstéttarinnar og rannsóknir á málefnum greinarinnar.

Mat á umsóknum

Stjórn SVS leggur mat á umsóknir um nýsköpunar- og þróunarstyrk í sjóðinn. Lagt er mat á umsóknir út frá eftirfarandi viðmiðum:

  • Er um að ræða nýbreytni eða endurnýjun?
  • Felur verkefnið í sér yfirfærslugildi, geta aðrir nýtt sér verkefnið?
  • Hefur verkefnið jákvæð áhrif á starfstéttina?
  • Eru markmið verkefnisins skýr og lýkur á að árangur náist?