Samþykktir Starfsmenntasjóðs
verslunar- og skrifstofufólks
1. gr.
Nafn sjóðsins og heimili
1.1. Sjóðurinn heitir Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks.
1.2. Sjóðurinn er stofnaður á grundvelli kjarasamnings á milli Samtaka atvinnulífsins annars vegar og Verzlunarmannafélags Reykjavíkur og Landssambands íslenzkra verzlunarmanna hins vegar dags. 14. maí 2000.
1.3. Sjóðurinn er eign Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, Landssambands íslenzkra verzlunarmanna og Samtaka atvinnulífsins. Heimili og varnarþing er í Reykjavík.
2. gr.
Markmið sjóðsins
2.1. Markmið sjóðsins er að auka hæfni og menntun verslunar- og skrifstofufólks, ásamt þvíað stuðla að auknu framboði af námi og námsefni sem svari þörfum atvinnulífsins á hverjum tíma.
3. gr.
Verkefni sjóðsins
3.1. Verkefni sjóðsins eru eftirfarandi;a) að veita fjárhagsaðstoð við menntun starfsmanna
b) kostun námskeiðahalds
c) kostun námsefnisgerðar
d) styrkur til fyrirtækja til starfs- og endurmenntunar starfsmanna
4. gr.
Tekjur sjóðsins
4.1. Atvinnurekendur skulu almennt greiða sem svarar 0,20% af heildarlaunum starfsmanna í sjóðinn.
4.2. Fyrirtæki geta sótt um undanþágu frá fullu gjaldi að uppfylltum nánari skilyrðum sbr. grein 12. Gjald til sjóðsins lækkar þá í 0,10% af heildarlaunum starfsmanna.
4.3. Stéttarfélögin skulu greiða mótframlag sem svarar einum þriðja af greiddu framlagi atvinnurekenda til verkefnisins og skal uppgjör fara fram a.m.k. tvisvar sinnum á ári.
4.4. Tekjur af rekstri námskeiða á vegum sjóðsins.
5. gr.
Stjórn sjóðsins
5.1. Stjórn sjóðsins er skipuð sex mönnum til eins árs í senn, VR tilnefnir tvo fulltrúa, LÍV tilnefnir einn fulltrúa og SA tilnefnir þrjá fulltrúa. Varamenn skulu vera fjórir, tveir tilnefndir af VR/LÍV og tveir af SA.
5.2. Stjórnin kýs formann, varaformann og ritara. Aðilar sjóðsins skulu skiptast á að gegna formennsku til tveggja ára í senn.
5.3. Stjórn sjóðsins ber ábyrgð á innheimtu, úthlutun og öðrum fjárreiðum sjóðsins.
5.4. Sjóðurinn greiðir allan kostnað sem af starfsemi hans leiðir.
5.5. Ekki skal greitt sérstaklega fyrir stjórnarsetu.
5.6. Stjórn sjóðsins er heimilt að fela aðila umsjón með daglegum rekstri sjóðsins, s.s. innheimtu iðgjalda, greiðslu styrkja, móttöku umsókna, fjármálum o.s.frv. Slíkur samningur skal vera skriflegur. Ávöxtun sjóðsins skal vera í samræmi við gr.7.
5.7. Stjórnin setur nánari starfsreglur um greiðslu styrkja, fjárhæð styrkja, ávinnslu réttinda og aðra starfstilhögun.
6. gr.
Reikningar og endurskoðun
6.1. Reikningar sjóðsins skulu lagðir fram áritaðir af löggiltum endurskoðanda fyrir 1. maí ár hvert. Reikningar skulu sendir til stofnaðila. Reikningsár sjóðsins er frá 1. janúar til 31. desember.
7. gr.
Ávöxtun sjóðsins
7.1. Heimilt er að ávaxta fé sjóðsins með eftirfarandi hætti;
a) í ríkisskuldabréfum, í skuldabréfum sem tryggð eru með ábyrgð ríkissjóðs
b) með kaupum á markaðsskráðum verðbréfum
c) í bönkum eða sparisjóðum
d) í fasteignum tengdum starfsemi og markmiðum sjóðsins
e) á annan þann hátt er stjórn sjóðsins metur tryggan.
8. gr.
Ávinnsla réttinda
8.1. Starfsmaður ávinnur sér eitt stig fyrir hvern mánuð sem hann er í starfi, sé hann með laun frá kr. 75.000 – 180.000. Sé hann með lægri eða hærri laun ávinnur hann sér hlutfallslega Færri eða fleiri stig eða brot úr stigi. Sjá nánar starfsreglur sjóðsins.
9. gr.
Skilyrði greiðslu styrkja til starfsmanna
9.1. Rétt til styrkveitinga úr sjóðnum eiga þeir sem eru félagar í VR eða félagi innan LÍV.
9.2. Styrkur getur aldrei numið hærri fjárhæð en stigaeign styrkþega. Hvert stig gefur rétt til 1.000 kr. styrks.
9.3. Styrkir eru greiddir við framvísun umsóknareyðublaðs og greiðslukvittunar.
10. gr.
Styrkir til aðildarfyrirtækja
10.1. Fyrirtæki sem greiða iðgjald til sjóðsins eiga kost á styrkjum til verkefna sem hafa það að markmiði að mennta starfsfólk fyrirtækisins. Styrkhæf verkefni geta m.a. verið námsefnisgerð eða námskeiðahald.
10.2. Stjórn sjóðsins tekur ákvörðun um styrkveitingar og upphæð styrkja í hverju tilviki fyrir sig. Sjá nánar í starfsreglum.
11. gr.
Aðrir styrkir
11.1. Stjórn er heimilt að veita styrki til einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka og skóla s.s. vegna útgáfu námsefnis, kennslu, eða annars sem að mati stjórnar leiðir til aukinnar menntunar innan stéttarinnar.
12. gr.
Skilyrði fyrir lækkun á sjóðsgjaldinu fyrir fyrirtæki
12.1. Fyrirtækið skal sýna fram á að virk endurmenntunarstefna sé í fyrirtækinu.
12.2. Allir starfsmenn VR/LÍV skulu eiga kost á að sækja þau námskeið sem í boði eru.
12.3. Fyrirtækið skal bjóða starfsmönnum sínum bæði fagnámskeið og almenn námskeið.
12.4. Fyrirtækið skal sýna fram á að kostnaður vegna menntastefnu sé meiri en sem nemur 0,20% af heildarlaunum starfsmanna.
12.5. Stjórn sjóðsins metur hvort skilyrðum 12.1 - 12.4 sé fullnægt og er það mat endanlegt. Staðfesti stjórn undanþágu frá 0,20% í 0,10% gjald gildir undanþágan til eins árs fyrsta árið og eftir það til tveggja ára í senn.
13. gr.
Breytingar og endurskoðun á reglugerð
13.1. Stjórn sjóðsins er heimilt að setja sjóðnum nánari starfsreglur, s.s. með breytingum á fjárhæð sbr. greinar 5.7. og 8.1.
13.2. Breyting á reglugerð sjóðsins skal staðfest af öllum aðilum sjóðsins.
Samþykktin var yfirfarin í apríl 2008
Myndir






