Beint á leiðarkerfi vefsins

Viltu styrkja stöðu þína?

Hröð tækniþróun í atvinnulífinu, vaxandi samkeppni og alþjóðavæðing gera sífellt meiri kröfur til hæfni okkar, þekkingar og menntunar. Þessi þróun hefur haft í för með sér breytingar á viðhorfi okkar - fólk á öllum aldri og í margvíslegum störfum leitar sér nú í auknum mæli meiri fræðslu og menntunar. Áður var menntun bundin við ákveðinn aldur en í dag er litið á menntun sem ævilangt ferli.

Af hverju að mennta sig í starfi?

  • Þú styrkir stöðu þína á vinnumarkaði og færð fleiri atvinnutækifæri.
  • Þú lærir það sem þú hefur áhuga á.
  • Þú færð frekar tækifæri til að starfa við það sem þér þykir skemmtilegt.
  • Aukin starfsánægja.
  • Þú hefur möguleika á hærri launum.

Spurningar til umhugsunar

  • Ertu að læra eitthvað nýtt?
  • Finnst þér þú hafa góð tök á starfinu?
  • Langar þig að þróa þig og bæta í starfi?
  • Viltu eiga möguleika á fjölbreyttara starfi?
  • Sýnirðu frumkvæði til menntunar í starfi?

Nokkrar staðreyndir

Kannanir hafa sýnt að um 80% starfsmanna á vinnumarkaði hafa áhuga á að nýta sér menntunartækifæri í starfi og skiptir litlu hver menntun þeirra er eða staða innan fyrirtækis.

Áhugi fyrirtækja á símenntun starfsmanna er mjög vaxandi. Hingað til hafa það þó helst verið stjórnendur og háskólamenntaðir starfsmenn sem hafa fengið tækifærin.

Kannanir sýna að þeir sem eru meira menntaðir eða hærra launaðir sækjast frekar eftir endurmenntun en þeir sem minni menntun hafa eða lægri laun.

Mikilvægt er að starfsmenn sýni frumkvæði til aukinnar menntunar.

Endurmenntun er ein forsenda þess að þú getir styrkt stöðu þína á vinnumarkaði og náð þínum persónulegu markmiðum.

Allir eru sammála um mikilvægi endurmenntunar fyrir íslenskt launafólk og íslenskan vinnumarkað. Við gerð síðustu kjarasamninga VR, LÍV og SA var samþykkt að efla starfsmenntun, m.a. með því að leggja til aukna fjármuni og setja á laggirnar sérstakan starfsmenntasjóð.

Allir félagsmenn VR/LÍV geta sótt um starfsmennta- og tómstundastyrki til sjóðsins svo og ferðastyrki ef ekki er boðið upp á námið í heimabyggð.

Styrkirnir nema allt að helmingi námskeiðsgjalda.

Upphæð styrksins fer eftir stigaeign en félagsmenn ávinna sér eitt stig fyrir hvern mánuð, sem greitt hefur verið iðgjald í sjóðinn.

Ef greitt hefur verið iðgjald í sjóðinn síðustu 3 ár, áttu inni 36 stig sem er að jafnvirði styrk að upphæð kr. 36.000.  Þeir félagsmenn, sem hafa hærri tekjur en kr. 180.000 á mánuði fá hlutfallslega fleiri stig. 
Dæmi: ef þú hefur kr. 225.000 í tekjur á mánuði færðu 1,25 stig á mánuði (225.000/180.000 = 1,25 stig) það samsvarar 1.250 króna styrk á mánuði.
Hvernig er sótt um styrk?

Umsóknareyðublöð fyrir einstaklingsstyrki er hægt að nálgast á skrifstofum verslunarmannafélaga, deilda verslunarmanna og á www.starfsmennt.is.  Skila þarf inn greiðslukvittun og upplýsingum um banka- og reikningsnúmer.

Fyrirtæki geta einnig sótt um undanþágu frá fullu gjaldi að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Sýna þarf fram á að virk endurmenntunarstefna sé í fyrirtækinu og að allir starfsmenn sem eru félagsmenn VR/LÍV eigi kost á að sækja þau námskeið, sem í boði eru. Lögð er áhersla á að fyrirtækið bjóði starfsmönnum sínum bæði upp á fagnámskeið og almenn námskeið.  Stjórn sjóðsins tekur ákvörðun hvort fyrirtæki uppfylli skilyrði til lækkunar á iðgjaldinu.
Fyrirtæki geta einnig sótt um styrki til sjóðsins og er hver umsókn metin í hverju tilviki fyrir sig.
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á www.starfsmennt.is.

Veistu hvaða nám hentar þér?

Er langt síðan þú varst síðast í skóla? Veist þú ekki hvert þú átt að snúa þér í leit að námskeiðum sem henta þér? Sjóðurinn styrkir allt nám, sem viðurkenndir aðilar bjóða upp á. Langar þig í tölvunám? Viltu vita meira um fagið sem þú vinnur við? Viltu kynnast leiðum til betra og heilbrigðara lífs? Möguleikarnir eru nánast ótæmandi hvort sem þú leitar fyrir þér í hinu opinbera skólakerfi, hjá einkaaðilum eða félagasamtökum. Tækifærin bíða eftir þér - þú þarft ekki að bíða eftir þeim.

Starfsmenntunarsjóður verslunar- og skrifstofufólks veitir styrki fyrir skólagjöldum og námskeiðsgjöldum hjá viðurkenndum aðilum s.s. mennta- og framhaldsskólum, háskólum, viðskiptaskólum, skrifstofuskólum, tölvuskólum, ferðamálaskólum, tungumálaskólum, tómstundaskólum, tónlistarskólum o.s.frv.

Símenntun er hagur allra, jafnt fyrirtækja sem einstaklinga !

 


Viltu skýrari texta?

Kynntu þér hérna hvernig þú getur stækkað letrið, breytt litum í bakgrunni og fleira.

Vefurinn er sérhannaður fyrir lesblinda og sjóndaufa.


Kynntu þér þá námsmöguleika sem eru í boði. Sjá lista yfir skóla.


Flutningur stiga

Við viljum vekja athygli á því að hægt er að flytja stig á milli sjóða frá Sjómennt, Starfsafli og Landsmennt.  Sjá nánar í starfsreglum.


Stjórnborð

Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta

Myndir

Kona með möppuMaður við skrifborð að hugsaMaður sem heldur á kassa af ávaxtasafaKona bak við stafla af bókum