Fréttir

Nýtt Fagnám verslunar og þjónustu

Nýtt nám fyrir starfsfólk í verslun hefur göngu sína í janúar 2020. Námið er 90 eininga nám á framhaldsskólastigi og er blanda af fjarnámi hjá Verzlunarskóla Íslands og vinnustaðanámi sem fer fram úti í fyrirtækjunum.

Umsækjendum með viðeigandi starfsreynslu úr verslun og þjónustu stendur til boða að fara í raunfærnimat hjá Mími. Raunfærnimat er ferli þar sem ákveðin aðferðarfræði er notuð til þess að meta og staðfesta færni án tillits til þess hvar hennar hefur verið aflað. Þeir sem fara í  raunfærnimat og fá hæfni sína staðfesta á formlegan hátt, geta látið staðar numið þar og nýtt niðurstöðuna til starfsþróunar. Aðrir, sem það kjósa, geta nýtt raunfærnimatið til styttingar á Fagnámi verslunar og þjónustu.

Áfangar og vörður í náminu

Panta ráðgjör vegna námsins

Nánar um raunfærnimat hjá Mími - símenntun


Svæði

Starfsmenntasjóður \ Húsi verslunarinnar \ Kringlunni 7 \ 103 Reykjavík \ Sími 510 1700 \ @ Hafa samband