Flýtilyklar
Fréttir
Kynning á Fræðslustjóra að láni hjá SA
22.10.2014
Hjá Samtökum atvinnulífsins var haldin kynning á Fræðslustjóra að láni sem er sameiginlegt verkefni nokkurra starfsmenntasjóða.
Fjölmörg fróðleg erindi voru haldin um verkefnið. SVS ásamt Landsmennt og Starfsafli kynntu verkefnið og praktísk atriði. Fram kom í erindi starfsmenntasjóðanna að 120 fyrirtæki með 10.000 starfsmenn, hafa nú þegar fengið fræðslustjóra að láni.
Lesa meira
Kynningarfundur á fræðslusjóðum hjá Samtökum atvinnulífsins
24.09.2014
Húsfyllir var á fyrsta fundi um starfsmenntamál hjá SA þann 24. september. Þröngt var um gesti en það kom ekki að sök, stuttir og snarpir fundir þar sem tekið er á starfsmenntamálum er yfirskrift fundarraðarinnar.
Lesa meira
Fræðslustjóri að láni til Kaupáss
10.09.2014
Kaupás ehf. hefur fengið fræðslustjóra að láni. Kaupás rekur 24 matvöruverslanir á höfuðborgarsvæðinu og vís vegar um sunnan- og austanvert landið. Um er að ræða eina stærstu keðju verslana hér á landi og fögnum við því að þetta verkefni er farið af stað.
Lesa meira
Menntun verslunarfólks á Norðurlöndunum
16.06.2014
Þann 12. júní s.l. var haldinn fundur um menntun verslunarfólks á Norðurlöndunum í Húsi atvinnulífsins. Fundurinn var á vegum SVÞ, Rannsóknarseturs Verslunarinnar og Starfgreinaráðs verslunar- og skrifstofufólks. Frummælendur vour starfsmenntafulltrúar frá félögum vinnuveitenda í verslun í Danmörku, Svíþjóð og Noregi.
Lesa meira
10 ára afmæli Verslunarstjóranáms á Bifröst
09.06.2014
Laugardaginn 7. júní sl útskrifuðust átta nemendur úr diplómanámi í verslunarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Þessi dagur markaði þau tímamót að 10 ár eru liðin frá því fyrsti hópurinn útskrifaðist úr námi í verslunarstjórnun. Á þeim tíma hafa útskrifast alls 178 nemendur.
Lesa meira
Fræðslustjóri til íAV
20.05.2014
Íslenskir aðalverktakar hafa fengið til sín Fræðslustjóra að láni. Markmið verkefnisins er að taka markvissa greiningu á fræðsluþörf og setja fræðslumálin í ákveðin farveg, en að jafnaði er unnið öflugt fræðslustarf hjá ÍAV.
Lesa meira
Fræðslustjóri að láni til Eldingar
24.04.2013
Elding Hvalaskoðun hafa fengið til sín fræðslustjóra að láni frá Starfsmenntasjóði verslunar og skrifstofufólks og Starfsafli. Fyrirtækið er búið að stækka og er að undirbúa sig fyrir vertíðina sem hefst nú á vormánuðum með auknu streymi ferðamanna. Markmiðið með að fá Fræðslustjóra að láni er að gera góðan vinnustað betri, auka starfsánægju og starfshæfni starfsmanna.
Lesa meira