Fréttir

Ársskýrsla SVS 2019

Ársskýrsla sjóðsins er komin út. Þar kemur fram að á árinu 2019 voru greiddir styrkir úr sjóðnum hærri en iðgjöld eða 104% af greiddum iðgjöldum. Fjöldi einstaklinga í VR og LÍV sem sækja styrki í sjóðinn fjölgaði um 7% og upphæð greiddra einstaklingsstyrkja jókst um 11%. Hins vegar var fjöldi fyrirtækjastyrkja svipaður og árið áður, en greiðsla vegna fyrirtækjastyrkja lækkaði um 15%. Fyrirtæki sem fá samþykkta lækkun á iðgjaldi greiða 0,1% til sjóðsins í stað 0,3% og var upphæð afsláttarins til fyrirtækjanna 10 milljón krónum hærri 2019 en árið áður.  


Svæði

Starfsmenntasjóður \ Húsi verslunarinnar \ Kringlunni 7 \ 103 Reykjavík \ Sími 510 1700 \ @ Hafa samband