8.9.2011
Réttindaflutningur á milli starfsmenntasjóða
Félagsmaður, sem hefur skipt um stéttarfélag vegna nýs starfs þarf að biðja skriflega (t.d. með tölvupósti) um flutning réttinda frá sínum gamla fræðslusjóði til þess nýja. Yfirlit um greidd félagsgjöld eru send til hins nýja sjóðs sem reiknar réttindi félagsmannsins samkvæmt sínum reglum. Þannig er tryggt að nýi félagsmaðurinn ávinni sér réttindi miðað við reglur þess sjóðs sem flutt er til.
Starfsmenntasjóðirnir hvetja félagsmenn sína til að fylgjast vel með réttindum sínum og óska eftir flutningi þegar þeir skipta um stéttarfélag á almenna vinnumarkaðnum.Myndir







