30.3.2010
Fræðslustjóri að láni - 1912 og dótturfyrirtækin Nathan Olsen og Ekran
Samstæðan byggir á traustum grunni eða allt frá árinu 1912 eins og nafnið gefur til kynna. Í dag ræður samstæðan yfir mörgum af sterkustu vörumerkjum heims, sem eru einnig fremst í flokki hér á landi.
Fræðslustjóri að láni er heiti verkefnis sem SVS hefur boðið fyrirtækjum síðan í lok árs 2009. Fræðslustjórinn er venjulega sjálfstæður mannauðsráðgjafi sem fer í boði fræðslusjóðanna inn í fyrirtæki í tiltekinn tíma og aðstoðar þau við greiningu á þörfum fyrir fræðslu, lyftir upp þeirri fræðslu sem þegar er í fyrirtækinu og bendir á leiðir til auka fræðslu í framhaldi af greiningunni. Þessi símenntunaráætlun er síðan grunnur að fræðslustarfi viðkomandi fyrirtækis í lengri eða skemmri tíma. Verkefnið hefur mælst vel fyrir meðal fyrirtækja og starfsmanna þeirra.
Myndir







