20.1.2010
Fræðslustjóri að láni til Eimskips
Fræðslustjórinn er í boði fræðslusjóðanna eða eftir nánara samkomulagi og aðstoðar hann fyrirtæki við greiningu á þörfum fræðslu, lyftir þeirri fræðslu sem þegar er til staðar í fyrirtækinu og bendir á leiðir til að auka hana í framhaldi af greiningu. Starf þetta er síðan hugsað sem grunnur að fræðslustarfi viðkomandi fyrirtækis til lengri eða skemmri tíma.
Eimskip er fyrsta fyrirtækið í verkefninu "Fræðslustjóri að láni" sem nýtur aðkomu þriggja starfsmenntasjóða að kostun verksins, Starfsafl, Landsmennt og SVS. Birna V. Jakobsdóttir, mannauðsráðgjafi hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum sinnir verkinu fyrir hönd sjóðanna.
Elín Hjálmsdóttir, starfsmannastjóri Eimskips, lýsti yfir mikilli ánægju með samninginn. Eimskip hefur langa og góða sögu í fræðslumálum og lítur á verkefnið sem upphaf að nýjum landvinningum á sviði starfsmenntamála innan fyrirtækisins. "Fræðslustjóri að láni" er mikilvægt verkfæri til að stuðla að markvissri uppbyggingu mannauðs í fyrirtækinu og tryggja að sú fræðsla sem valin verður, muni koma bæði starfsmönnum og fyrirtækinu að notum og auka samkeppnishæfi þess.

Að lokinni undirritun samninga, f.v. Sif Svavarsdóttir, Eimskip, Elín Hjálmsdóttir, starfsmannastjóri Eimskips, Birna V. Jakobsdóttir, mannauðsráðgjafi, Kristín Njálsdóttir, Landsmennt, Sveinn Aðalsteinsson, Starfsafli og Björn Garðarsson, verkefnastjóri SVS.
Myndir






