20.1.2010
Fræðslustjóri að láni til Eimskips
Eimskip Ísland, Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks (SVS), Starfsafl og Landsmennt hafa gengið frá samkomulagi um „Fræðslustjóra að láni" til fyrirtækisins. Samningurinn nær til um 750 starfsmanna en um 500 þeirra eru félagsmenn ofangreindra fræðslusjóða.
19.1.2010
Dagur menntunar í ferðaþjónustu haldinn 25. febrúar
Dagur menntunar í ferðaþjónustu verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík þ. 25. febrúar nk. Þetta er í þriðja sinn sem Samtök ferðaþjónustunnar standa að ráðstefnu þessari en Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks, Starfsafl og Landsmennt hafa styrkt ráðstefnuna á undanförnum árum. Að þessu sinni verður m.a. fjallað um góðan árangur í starfsþjálfun hjá ítölskum ferðaþjónustufyrirtækjum og mikilvægi starfsmenntunar í ferðaþjónustu á krepputímum. Þá verður starfsmenntaviðurkenning SAF afhent í lok ráðstefnunnar. Ferðaþjónusta bænda hlaut viðurkenningu 2009.
7.1.2010
Fræðslustjóri að láni
Á árinu 2009 undirritaði Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks samning við 5 fyrirtæki vegna verkefnisins "Fræðslustjóri að láni" sem er verksamningur um þjálfun og fræðslu félagsmanna LÍV og VR.
Fyrirtækin sem um er að ræða eru Skeljungur, IP fjarskipti, Össur, Listadún Marco og Eimskip Ísland.
.
Myndir







