5.10.2010
Sameignlegt eyðublað fyrirækja vegna styrkumsókna
3.8.2010
Greiðsluskylda atvinnurekenda í fræðslusjóð
Þann 11. júní sl. samþykkti Alþingi frumvarp félags- og tryggingaráðherra um skyldu allra atvinnurekenda til að greiða gjald í ,,fræðslusjóði atvinnulífsins''. Sjá lög nr. 55/1980.
30.3.2010
Fræðslustjóri að láni - 1912 og dótturfyrirtækin Nathan Olsen og Ekran
15.2.2010
Kynnisferðir - Fræðslustjóri að láni
20.1.2010
Fræðslustjóri að láni til Eimskips
Eimskip Ísland, Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks (SVS), Starfsafl og Landsmennt hafa gengið frá samkomulagi um „Fræðslustjóra að láni" til fyrirtækisins. Samningurinn nær til um 750 starfsmanna en um 500 þeirra eru félagsmenn ofangreindra fræðslusjóða.
19.1.2010
Dagur menntunar í ferðaþjónustu haldinn 25. febrúar
Dagur menntunar í ferðaþjónustu verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík þ. 25. febrúar nk. Þetta er í þriðja sinn sem Samtök ferðaþjónustunnar standa að ráðstefnu þessari en Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks, Starfsafl og Landsmennt hafa styrkt ráðstefnuna á undanförnum árum. Að þessu sinni verður m.a. fjallað um góðan árangur í starfsþjálfun hjá ítölskum ferðaþjónustufyrirtækjum og mikilvægi starfsmenntunar í ferðaþjónustu á krepputímum. Þá verður starfsmenntaviðurkenning SAF afhent í lok ráðstefnunnar. Ferðaþjónusta bænda hlaut viðurkenningu 2009.
7.1.2010
Fræðslustjóri að láni
Á árinu 2009 undirritaði Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks samning við 5 fyrirtæki vegna verkefnisins "Fræðslustjóri að láni" sem er verksamningur um þjálfun og fræðslu félagsmanna LÍV og VR.
Fyrirtækin sem um er að ræða eru Skeljungur, IP fjarskipti, Össur, Listadún Marco og Eimskip Ísland.
.
Myndir







