Verkefnið „Fræðslustjóri að láni“
Byggist á að lána út mannauðsráðgjafa, sérhæfðum í vinnustaðafræðslu og óformlegri menntun, til fyrirtækja. Ráðgjafinn fer yfir fræðslu- og þjálfunarmál fyrirtækisins, dregur fram það sem vel er gert, gerir eða dýpkar greiningu á þörfum fyrirtækisins og samhæfir við önnur námskeið eða viðurkenndar fræðsluleiðir innan óformlega fræðslukerfisins. Má þar nefna námsleiðir samkvæmt námskrám Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins – þar sem það á við.
Fræðslustjóri að láni er árangursmiðað verkfæri sem miðar að því að samhæfa og nýta lausnir sem þegar eru til, ýmist innan fyrirtækjanna og/eða hjá símenntunarstöðvum eða öðrum fræðsluaðilum. Það er mikið til af góðum náms- og þjálfunarúrræðum á vinnumarkaðnum en mörg þeirra eru lítið notuð meðal smærri fyrirtækja, hugsanlega vegna skorts á kynningu. Mörg fyrirtæki, einkum þau stærri, eru með fjölbreyttar þjálfunaráætlanir fyrir sitt starfsfólk. Vandinn er fá yfirsýn yfir fræðsluna og koma henni í farveg sem gagnast bæði fyrirtækinu og starfsmönnum. Þar er þörf fyrir fræðslustjóra í afmörkuð, skilgreind verkefni.
Samstarfsaðilar Starfsmenntajóðs verslunar- og skrifstofufólks í þessu verkefni eru Starfsafl og Landsmennt
Hvernig fæ ég fræðslustjóra að láni?
1. Þú hefur samband við starfsmann sjóðsins Björn Garðarsson í síma 891 6820 eða með tölvupósti bjorn@frae.is .Skilyrði er að fyrirtækið hafi starfsmenn innan SVS og hafi greitt til sjóðsins í 12 mánuði. Við komum á fund til þín/ykkar og ræðum verkefnið.
3. Ef öllum líst vel á verkefnið, gerum við drög að samningi sem þið farið yfir. Fjöldi tíma sem ráðgjafinn vinnur fyrir fyrirtækið er tengdur fjölda starfsmanna sem eiga aðild að starfsmenntasjóðunum. Einungis er leitað til sjálfstæðra ráðgjafa sem hafa mikla reynslu af verkefnum í fyrirtækjum.
4. Samningurinn fer fyrir stjórn sjóðsins til afgreiðslu.
5. Ef verkefnið er samþykk er gengið til samninga og verkefnið hefst strax við undirskrift. Verkefnið er mótað í fullu samráði við fyrirtækið.
6. Komið er á fót rýnihópum innan fyrirtækisins en ráðgjafinn leiðir þá vinnu, vinnur þarfagreiningu og gerir símenntunaráætlun. Áætlunin er eign fyrirtækisins og viðkomandi sjóðs, sem gætir fyllsta trúnaðar.
7. Verkefnið kynnt á lokafundi að viðstöddum fulltrúum viðkomandi starfsmenntasjóða, sem eiga aðild að verkefninu.
Myndir







